mánudagur, september 22, 2008

Hvað er að frétta?

fór í ferðalag með mömmu og pabba þar sem við misstum tvisvar sinnum hjól undan bílnum. fyrst á sprengisandi svo í múlagöngum miðjum.

fór í útilegu með védísi upp í mosfellsdal.

byrjaði aftur í háskólanum.

skipti úr frönsku, spænsku og íslensku yfir í bara íslensku og smá spænsku.

stúdentaleikhúsið fór af stað.

ég byrjaði í fíh.

védís flutti til kína.

byrjaði aftur í brúðubílnum.

ég hóf áfengisbann með uglu.

byrjaði í leikfimi.



fór til grænlands á stefnumót við strák sem ég kynntist á facebook, áttum yndislegan dag í kúlusúkk.

hætti við að vera í leikhóp stúdentaleikhússins.

helga byrjaði að flytja út og við fengum nýjan helga í staðinn.

ákvað að sinna námi og fara um leið til frakklands með kórnum.

ákvað að frakklandsferð verður lokaferð mín með kórnum.

ákvað að fara til suður-ameríku með gígju.

hóf markvisst að spara fyrir ferð til suður-ameríku.

laug að vinum mínum í perú að ég hefði þyngst um 30 kg og hefði litað hárið mitt bleikt. til að sanna það sendi ég þeim mynd af mér.



mamma mín á afmæli í dag. til hamingju með afmælið mamma mín.

pabbi, mamma og melkorka ákváðu að fara til védísar til kína um áramótin.

vinkonur verða ófrískar í röðum.

stjórn stúdentaleikhússins réð mjög spennandi leikstjóra og leikritaskáld fyrir næstu önn.

ég fékk mér göt í eyrun.

ég var beðin um skriflegt leyfi frá foreldrum til að fá göt í eyrun. semsagt hélt að ég væri 17 ára eða yngri.

ég komst að því hversu mikið tilfinningar geta kvalið mann.

komst að því hvað ísland er mikið veðrasker, meira að segja í september.

fékk nóg af skemmtiferðaskipum og sannarlega búin að fullvissa mig um að eyða ekki einu brotabroti af ævi minni á einu slíku.

heimsendir verður í mars.

mánudagur, september 15, 2008

valkvíði er hræðilegt fyrirbæri.

að fá alls ekki að velja er líka hræðilegt.

það að velja hefur þó valdið mér meiri heilabrotum og magaverkjum en það að fá ekki að velja. hvort er þá betra?

laugardagur, september 06, 2008

stundum vill maður bara fela sig undir sænginni fyrir umheiminum.